föstudagur, mars 27, 2009

Horfinn frá

Ég er orðinn fráhverfur hinu og þessu. Þar á meðal b-orðinu... allavega í bili, þar sem ég sé ekki í fljótu bragði hvernig ég á að hrinda því í framkvæmd.

Ég er líka nokkuð viss um að leikarar þurfi að poppa upp á radarnum af eigin rammleik til að eftir þeim sé munað og um þá sé hugsað. Það þýðir ekkert fyrir þá að draga sig í hlé og bíða eftir því að fólk fari að muna eftir þeim og sakna þeirra.

Lag dagsins: Oh, what to chose, what to chose... hmmm... White tiger með Pétri Ben Jú, ég held að það sé málið. Algjörlega. Öll hin eru eitthvað svo... risque og afvegaleiðandi.