þriðjudagur, ágúst 31, 2004

Lizst...

Ólöf, Venni og Haukur duttu út af listanum sökum bloggleysis, en Tobbi og Alma koma ný inn... any comments?

Já... btw... bloggari.com er kominn í gang aftur og því ber að fagna.

Frábært...

Bréfaskriftir hafnar... Meira um það síðar. Annars, þá kíkti ég í ræktina áðan (einhver orðinn leiður á því að heyra um það?) og tók hnébeygju með Jóa Massa. Engin stórkostleg afrek, fór upp í 120kg og tók það í tvö sett, 2 og 1 rep. Frekar lélegt... grúvið ekki til staðar. Síðan tókum við sitjandi kálfa (~50kg) nokkur sett og svo fótapressu. Á eftir fótapressunni tókum við axlapressu í vél, þar sem ég hafði ekki hugmynd um hvað hvaða þyngd var (pumpaði 9-11 8 sinnum).

Anyways, þá er mamma að koma í kvöld og verður í u.þ.b. viku. Eitthvað að fara að vesenast, held hún hafi skráð sig í einhverja áfanga í háskólanum og ætlar að mæta í nokkra tíma og kynna sér efnið... svo er eitthvað meira vesen á henni.

Spurning um að fara að plögga fólk í basket. Einhverjir sem eru menn í það?

mánudagur, ágúst 30, 2004

piff...

Fyrsti skóladagurinn í dag. Mér leið eins og sá síðast hefði verið fyrir helgi... allt var eitthvað svo... eins. Allir jafn sætir og fínir... Svo fór ég að lyfta með Jóa Massa eftir það. Við tókum singles í bekknum, isometric bekk og þröngan bekk. 5 eða 6 singles með 10sec pásu og með 90kg, isometric hold, 2 sett með 80kg, 19 og 13 sec síðan þröngur með 60kg og svo 70kg. Svo fórum við upp að teygja og tókum nokkrar cuban presses. Svo þegar við vorum að fara, þá komu Tobbi, Hjörtur og Bjarki. Ég fór aftur með þeim inn og tók þá í gegn. Þeir voru heldur slappir eftir það... voru með einhverjar pælingar um það hver stjórnaði helvíti á meðan ég væri að pína þá og þess háttar, en þeir eiga eftir að þakka mér seinna... Akkúrat núna er ég bara að bíða eftir því að 70min klárist þannig að ég geti kíkt á the Man Show. Ég horfi skammarlega sjaldan á þann þátt. Hef líka verið að pæla aðeins í samskiptum kynjanna, en er ekki kominn með neina niðurstöðu sem ég get sett fram og staðið við. Anyways... l83r...

laugardagur, ágúst 28, 2004

Gærið

Kíkti út með liðinu í gær... var svona mini mini mini get together prófloka hittingur heima hjá mér í gær, 7-8 manns eða eitthvað svoleiðis. Það var alveg ótrúlega fínt, góður fílíngur á fólki og allir í frekar miklu stuði... þrátt fyrir að eina tónlistin væri þegar Siggi James og Pálmar félagi hans plokkuðu gítarinn (persónulega held ég að þeir séu bara svona góðir). Að lokum þá var ákveðið í bæinn og ég reyndi af veikum mætti að stýra liðinu inn á Hverfisbarinn... en það gekk ekki frekar en fyrri daginn... liðið endaði inná Vegamótum í staðinn, sem var í fínu lagi því aldrei þessu vant þá náðum við borði niðri. Það var ótrúlega gaman að fylgjast með liðinu þarna, stelpum sem dilluðu rassinum í áttina að okkur, og strákum sem voru að reyna að dansa utan í stelpunum sem voru að dilla rassinum. Sérstaklega var gaman að fylgjast með strák sem var eitthvað að reyna að dansa við stelpu þarna, og sjá hvað hún var lagin við að halda honum í öruggri fjarlægð. Vinkonur hennar sátu á borðinu við hliðina á okkur, og þær virtust líka vera að fylgjast með þessu. Við Gauti vorum alveg tilbúnir að veðja að þessi strákur fengi sko ekki neitt hjá stelpunni. Síðan settist stelpan hjá vinkonum sínum. Eftir smá stund kom strákurinn sveittur af dansgólfinu og hlammaði sér niður við borðið... stelpan og önnur vinkona hennar flugu upp á sama augnabliki og þutu á dansgólfið... ég og strákarnir trufluðumst af hlátri! Mér finnst alveg merkilegt að strákurinn hafi ekki tekið eftir því... nema kannski hann hafi KOSIÐ að taka ekki eftir því. Eftir þetta var kvöldið frekar downhill... ég, Gauti og Jói fórum að pissa í einhverjum göngum sem voru svo vingjarnlegt að kveikja ljós rétt á meðan, síðan röltum við niður Laugarveginn með viðkomu á Ara í Ögri... ætluðum á Kaffibrennsluna, en þar var verið að loka, svo við röltum hring á Hressó og svo uppá Grand Rokk, en Ólöf Birna slóst í hópinn þar og við Jói skiptum Gauta út fyrir hana og fórum á Sólon sem var jafn glataður og venjulega. Maður hefði haldið að þegar einhver er búinn að vera dj hverja helgi í x langan tíma, þá komi einhver upp að honum og segi: "dude, þú ert bara því miður virkilega virkilega lélegur... þú bara getur ekki haldið uppi dansstemmingu... eða bara nokkurri stemmingu" Við Jói beiluðum á þessu og fórum heim. Svo þegar ég var kominn heim bjallaði Krissi í mig og bað mig að sækja hann niður í bæ, ég brunaði eftir honum og keyrði hann á BSÍ til að ná í einn af sveittustu borgurum bæjarins. Eftir það keyrðum við út að Gróttu, spjölluðum kallaspjall og tókum nokkrar glerflöskur og smölluðum þeim til að fá útrás... það var mjög fínn endir á kvöldinu, in retrospect... nearly perfect.

btw. þá var ég kelling í ræktinni, eitthvað tæpur í bakinu, þannig að ég tók því bara rólega og pumpaði bicep og tricep eftir nokkur sett af Good-mornings og upphitun í DL.

Já, og svo ég gleymi því ekki...

Síðunni hefur borist kvörtun... það virðist vera að það sé ruglingur á milli Jóanna sem ég þekki... fólk sé að rugla þeim saman fram og aftur, þannig að mig vantar nickname á annars vegar Jóa sem ég lyfti með og hins vegar Jóa í Ferro... any ideas?

fimmtudagur, ágúst 26, 2004

Shout out to... you know who you are...

Ég fékk góða vinkonu mína til að gagnrýna mig áðan... fékk hana til að fara með mér yfir mína helstu galla, og það sem ég ætti að forðast. Mikið ofboðslega var ég mikið ósammála sumu sem hún sagði... ég var jafn ósammála því eins og ég var sammála öðru sem hún sagði. Það er gott að eiga vini sem maður treystir til að gagnrýna sig.

Tucker Max

Eftir því sem ég les meira á þessari síðu, þeim mun ánægðari er ég með að drekka ekki. Ég er nefnilega nokkuð viss um að ég myndi haga mér mjög svipað og þessi gaur gerir á fylleríum. Hugsið ykkur ef það væri ekkert til að koma í veg fyrir að ljótu setningarnar sem myndast í hausnum á mér sleppi út! Úff... ég hefði margar brotnar sálir á samviskunni. Þannig að ég ætla bara að halda áfram að drekka EKKI. Hlífa fólki við frekara verbal abuse en það fær nú þegar frá mér... (sem er þó blessunarlega lítið)

Annars, þá er ég búinn í prófunum, og er að skríða saman... lítið slappur ennþá, bara með smá hálsverk og axlaverk. Mæti í ræktina á morgun... btw, þá eru PR komin upp í SQ og BP, 130kg og 105kg (jöfnun) svo að núna er bara beðið eftir 160kg í DL til að starta vetrinum almennilega... það gæti gerst á morgun, en fer bara eftir því hvort slappleikinn verður alfarið horfinn...

þriðjudagur, ágúst 24, 2004

Veikur?

Undirbúningur fyrir útlimaanatómíu í fullum gangi, enda er prófið kl.9 í fyrramálið...hmmm... ég get ekki sagt að ég elski það.

Gærdagurinn var góður... braut lesturinn upp með því að fara að lyfta með Jóa, og viti menn... jafnaði persónulegt met í bekknum með því að taka 105kg... langt síðan það hefur farið upp... Svo fór ég aftur með Jóa í dag, og náði alveg helvíti góðu grúvi í hnébeygju sem endaði á því að ég setti persónulegt met, 130kg. Það var sko alls ekki ónýtt... svo kem ég heim, fæ mér að borða og fer í sturtu WHAM! Veikur? Já, Veikur! Allt í einu var hr.Hálsbólga mættur á svæðið með vini sína hr.Hausverk og hr.Slappleika. Ég kann þeim litlar þakkir fyrir og læt þá hér með vita að þeir eru mjög óvelkomnir hjá mér.

sunnudagur, ágúst 22, 2004

Menningarnótt...

...var ekki æðisleg, segi ég og skrifa. Það var hreinlega of mikið af fólki þarna. Ég hefði kannski skemmt mér alveg ágætlega ef einn þriðji fólksins, eða jafnvel helmingur, hefði verið þarna, en þetta var bara allt of mikið. Hvað er flott við það að slá met á tónleikum sem voru með 80þús manns? Af hverju er betra að hafa 100þús þarna? Er eitthvað æðislegt við að troða fólki þangað eins og sardínum í dós? Ég sá lítinn sjarma við þetta. Egó (sem voru eina ástæðan fyrir því að ég fór niður í bæ) voru frábærir, en meira að segja þeir misstu sig í rugl inn á milli þar sem bubbi vildi endilega að fólkið hermdi eftir honum... svoleiðis getur verið ágætt tvisvar til þrisvar inn á milli, en þegar það er orðinn 3-5 mínútna kafli í lagi, þá er ég löngu búinn að missa áhugann, en þrátt fyrir þetta þá rokkuðu þeir. Þú klikkar ekki með fjöllin hafa vakað í risahljóðkerfi... ja, það er að segja nema að þú sért hljóðmaður hjá extone sem stillir trommurnar of lágt miðað við rest... það gerir maður bara ekki í því lagi sem hefur (arguably) þéttasta og flottasta trommuundirspil af öllum íslenskum lögum. Svo eftir þetta var hin sæmilegasta flugeldasýning, sem var lúkkaði mjög vel, en mér fannst vanta öflugri sprengingar (að vísu er ekki alveg að marka mig, ég hefði helst viljað láta sprengja nokkrar dýnamíttúbur í staðinn fyrir að hafa flugelda, og ég hefði viljað heyra ógurlegan hvellinn og finna hárið á mér feykjast aftur, but thats just me). Löggan fær mörg prik hjá mér fyrir að vera mjög sýnileg. Aðra íslendinga ber ég hins vegar með sams konar priki fyrir rusla fáránlega mikið til... but I digress. Síðan var ekki hægt að ná í neinn, og allur tími eftir þetta fór í hangs og bið... heck... ég hefði átt að drulla mér heim strax eftir að Egó sló botninn í miðbakkatónleikana...

laugardagur, ágúst 21, 2004

H&H

Jæja, það hefur mikið gengið á síðan síðast. Massívur lærdómur fyrir höfuð og háls prófið. Ég, Helgi og Siggi vorum alveg á fullu að læra eftir lífrænu efnafræðina, það skiptust á skin og skúrir, djúp örvænting og von, þannig að á einum tímapunkti þá hreinlega lofaði ég Sigga að það kæmi ca.70% af sama prófi og við vorum að leggja áherslu á... og viti menn, prófið var ca.60-70% það gamla... núna sé ég bara eftir því að hafa ekki lofað honum að SAMA próf kæmi aftur.

Annars, þá er ein stutt og skondin saga af próflestrinum. Á fimmtudaginn, þá var Helgi að fara heim, en við Siggi ætluðum að fá að ljósrita gömul próf hjá honum. Planið var lagt niður þannig að Siggi færi upp í Eignamiðlun (fyrirtækið hjá pabba hans, sem við höfum nokkuð oft farið í til að læra í vetur) og ljósritaði, á meðan við Helgi færum að kaupa ís... síðan ætlaði Helgi að taka prófin sín og fara heim og droppa mér til Sigga í leiðinni... ok... við fórum og keyptum Shake, biðum í röð í mikilli veðurblíðu og fengum alveg einstaklega góða shake-a. Svo brunuðum við upp í Síðumúla og upp að Eignamiðlun. Svo gengum við upp að hurðinni og bönkuðum til að Siggi gæti hleypt okkur inn... úbbs... Siggi kom skælbrosandi fram og benti okkur á að það væri opið... svo gengum við inn, og það var fólk þarna... wtf! úbbs... þá föttuðum við að það var auðvitað hábjartur dagur, og fyrirtækið í fullum gangi! En, auðvitað höfum við það okkur til varnar að hafa aldrei komið þarna áður nema eftir lokun þegar allt hefur verið harðlæst... ég sé samt fyrir mér þegar við höfum staðið þarna eins og álfar fyrir utan...

starfsmaður #1: Siggi, þessir fávitar fyrir utan sem eru að banka líta út fyrir að vera á þínum vegum...
Siggi James: passar...

Jæja, þá er það útlimaanatómían... mikið ofboðslega er það mikið skárra en hitt... anyways... I'll keep you guys posted.

miðvikudagur, ágúst 18, 2004

Nýr Listi

Jæja... enn og aftur hefur þetta stokkast upp. Getur verið að menn hafi meira að segja eftir því sem þeir eru þroskaðri? Mind you, ég velti þessu bara upp sem opinni spurningu...

þriðjudagur, ágúst 17, 2004

Jewelry????

Riiiiiiiiiiiiiiiiiight!

eða... not right, wrong jafnvel?


You be the judge!


1/3

Þá er efnafræði II búin... og höfuð og háls á föstudag... úff... fossa cranii media et posterior verða sennilega bestu vinir mínir í dag...

p.s. Snorri ég elska þig EKKI!

laugardagur, ágúst 14, 2004

Rómeó og Júlía... bravissimo!

Ég fór á sýninguna "Rómeó og Júlía" í gær. Þvílík sýning... Það var ekki nóg með að leikararnir væru að koma frá sér textum og tilfinningum gjörsamlega í karakter eins og gert er í venjulegu leikhúsi, heldur voru þeir að framkvæma hárnákvæmar jafnvægis og/eða kraftæfingar á meðan. Þetta leikrit slær út allt annað sem ég hef séð. Sýningin slær meira að segja út "með fulla vasa af grjóti" sem Stefán Karl og Hilmir Snær léku svo snilldarlega í. Jú, að vísu var leikurinn sjálfur og leikræn tjáning betri þar, verð ég að viðurkenna, en sýningin stenst Rómeó og Júlíu ekki snúning.

Annars... þá er ég búinn að vera að læra í dag... lítið eitt vonsvikinn yfir skýjunum/þokunni sem svífur hér nokkur hundruð metrum yfir, og blokkerar elsku sólina. Ekki það... veðrið er nú svosem alveg þokkalegt þrátt fyrir það...

Jæja... back to studying...

föstudagur, ágúst 13, 2004

If you dance with the devil...

Köngulærnar hafa bakkað í árás sinni á húsið. Þær meika greinilega ekki hársprey og kveikjara. Það eru einhverjar örfáar eftir. Næsta mál á dagskrá verður grisjun á frumskóginum hérna í kring... ok, kannski ekki alveg næsta mál á dagskrá, en við erum byrjaðir að hugsa um það. Ég var að koma úr körfu með Krissa, Sigga og Óla, og viti menn, gamlir taktar eru farnir að sýna sig aftur. Held að það tengist því eitthvað að ég er aðeins léttari á fæti en ég var í vetur. Svo er það bara massalærdómur áfram... Það verður sko ánægður Fjölnir sem stendur uppi í lok ágúst, og ef til vill ekki eingöngu vegna þess að prófin verði búin...

fimmtudagur, ágúst 12, 2004

Stríðsyfirlýsing!

Ég lenti í laumulegri innrás í nótt. Innrásin var svo laumuleg, að ekkert sást eftir hana annað en verksummerki. Þegar ég áttaði mig á því að einhver hafði verið í herberginu mínu, þá fékk ég hroll um mig allan... og hvað hafði þetta verið? Jú, einhver skaðræðis KÓNGULÓ! Þetta þýðir stríð! Þær eru búnar að fá að vera í friði nógu lengi þarna úti í garði. Að ryðjast inn til mín og spinna vef í hvert horn??? Ertu að fokking djóka í mér??? Nú verður það sko bara hársprey og kveikjari, hringinn í kring um húsið...

miðvikudagur, ágúst 11, 2004

Augnkontakt, brosa, veifa...

Ég hef svolítið verið að pæla í því hvort að fólk sem ég þekki lítillega, sem myndu falla í kunningjahópinn, haldi að ég sé að ignore-a það á djamminu. Þegar ég sé einhvern sem ég kannast við, þá er ég nefnilega ekkert að stökkva upp til handa og fóta, eða veifa og öskra. Ég vil frekar bíða eftir því að ná augnakontakt, brosa, og veifa. Þess vegna verður ekkert úr veifi ef ég næ ekki augnakontakt. Ég gæti alveg trúað því að það sé hellingur af fólki þarna úti sem heldur að ég sé fúll út í það, eða að ég líti svo stórt á mig að ég vilji ekki kannast við það, en það er engan veginn tilfellið... þannig að ef þið viljið að ég heilsi ykkur, þá skuluð þið horfa framan í mig fyrst, síðan:

augnkontakt, brosa, veifa...

Sumar... á Íslandi?

Vá hvað það er yndislegt veður! Ég hef það mjög fínt hérna á Arnargötunni, er úti á svölum að læra. Skrapp svo rétt áðan til að fá mér alveg killer bragðaref í Videoljóninu dunhaga...

Sterkir molar, toblerone, tromp og dash af lakkríssósu

mmmm.... alveg geðveikt!

Svo skemmir ekki fyrir að afgreiðslustelpan er í minipilsi og hlýrabol (og hefur alveg vöxtinn í að klæða sig þannig)

óver end át úr Vesturbænum

þriðjudagur, ágúst 10, 2004

Gr8

Ég er alveg fastur á því að maður eigi að lifa lífinu þannig að maður eigi aldrei að biðjast afsökunar á því sem maður er, eða því sem maður gerir. Á móti kemur að þá þarf maður að hugsa áður en maður framkvæmir og vera tilbúinn til að standa við ákvörðun sína.

Það er ýmislegt búið að gerast... eða... ja... kannski ekki. Allavega, þá er ég búinn að læra svolítið mikið. Svo er ég líka búinn að rölta á Keili (næsta ferð verður sko tekin á tíma) og fara í körfu. Svo bauð Magga mér í mat í dag á hinn indæla Salatbar sem hún vinnur á. Ég leyfði mér líka að kíkja á strákskrattann í gær í góðum félagsskap. Svo leit ég víst aðeins út með liðinu á laugardag, en var kominn heim um miðnætti. Svo er stefnan bara lífræn, lífræn, lífræn, lífræn, lífræn, lífræn út í eitt... já og að tæla Krissa til að hjálpa mér... eða jafnvel að fá Krissa til að tæla prófessorinn sinn til að hafa prófið mitt létt. Anyways, þá er málið að lyfta og læra og sleikja sólina... kveðja, F-dawg.

laugardagur, ágúst 07, 2004

Esjan? Riiiiiiiiight...

Ég kíkti aðeins til Sibbu í gær. Nánar tiltekið með Krissa og Óla. Það var einhver smá hittingur, og viðstaddir voru nokkrir sjúkraþjálfarar auk okkar. Tvær stelpur úr sjúkraþjálfuninni og einn strákur eru að vinna með Sibbu... og þau töluðu MIKIÐ um vinnuna sína. Síðan fóru strákarnir og eitthvað af stelpum, þannig að eftir vorum ég og crew-ið mitt og svo Sibba og stelpucrew-ið hennar úr vinnunni (skilst að önnur sé vaktstjórinn hennar og hin sé vaktstjóri á annarri vakt eða eitthvað). Um tíma leit þetta út eins og show-down milli tveggja hópa þar sem við sátum sitt hvoru megin í stofunni. Hins vegar þá tók það ekkert langan tíma að gera andrúmsloftið þægilegra (með ýmsum... ja... söngvum t.d.). Síðan var stefnan tekin niður í bæ. Rétt droppað við á Hverfis. Þar töluðu stelpurnar fjálglega um það hvað þær þyrftu að vakna snemma, þar sem þær ætluðu nú að sigrast á Esjunni kl.10, hvorki meira né minna... (iss ég kleif nú Hólmatind fyrir stuttu). Við spjölluðum aðeins meira og það endaði á því að þær buðu mér og Óla að koma með sér. Auðvitað sögðum við já... aðallega til þess að bakka ekki og vera beilarar... well, klukkan er VEL rúmlega 10 og þær ekki enn mættar... iss... stekk bara aðeins í ræktina þá og ræðst svo á bækurnar.

föstudagur, ágúst 06, 2004

Lestenn...

Jæja, listinn uppfærður... piff... ég hefði ekki gert það fyrr en... eh... einhvern tíman seinna ef mér hefði ekki verið hótað lífláti ef þetta yrði ekki uppfært a.s.a.p.

En... ég bætti tveimur nýjum inn á listann... vegna þess að ég les þau annað slagið... so its only fair...

bloggari.com fólkið fær ekki rating því það er ekki hægt að komast inn á síðurnar þeirra.........

pleh að sinni fólk...

fimmtudagur, ágúst 05, 2004

It was late and I was tired...

Vá, það er ekkert smá langt síðan ég bloggaði síðast, enda ýmislegt búið að ganga á. Hmmm... hvar á ég að byrja? UUUUUUuuuuuuuuuuuhhhhhh.... ég fór ekkert um verzlunarmannahelgina, heldur var ég í bænum og lærði. Ég og Siggi stóðum okkur alveg ótrúlega vel... að vísu kíkti ég aðeins á djammið á laugardaginn með Krissa, hitti elsku Kristjönu mína og endaði á vegamótum með Krissa og efnafræðigenginu. Svo hitti ég meira að segja Frikka, og gott ef Bósi og Jói voru ekki með honum. Síðan er ég bara búinn að vera að keyra eins og vitlaus maður... og síðan fengum við hvolp á lagerinn... hvolpurinn þvælist bara fyrir mönnum og nánast hleypur í lappirnar á þeim þegar þeir eru að vinna.

Síðan er ég búinn að vera í ýmsum djúpum pælingum, og búinn að koma með ýmis gullkorn... vandamálið er bara, að þau koma bara á þessu ákveðna mómenti, og ég man þau bara þangað til ég tjái þau, í orði eða á blaði (eða með trylltum exotískum mjaðmahreyfingum)... síðan eru pælingarnar gleymdar. Þess vegna er ég að pæla í að hætta að tala við fólk... allavega um eitthvað ógeðslega clever og fyndið sem mér dettur í hug, nei, ég ætla að deila því með heiminum, hérna... þannig að það verði ekki þröngur hópur til að tigna my wittiness, heldur allur heimurinn... uh *hóst*einhveraðmissasig*hóst* En anyways, þá finnst mér þetta hafa verið hálf andlaust hjá mér, kannski vegna þess (eins og Tóbías var að benda mér á) að ég hef ekki alveg verið að blogga um það sem mér hefur verið efst í huga. Hins vegar held ég að ég myndi endanlega ganga fram af fólki ef ég setti það ómengað hérna inn... amma skrattans myndi sjálfsagt roðna við að lesa það... ráðleggingar til Hilla um ms.B og hvernig er hægt að snúa sér í nánum samskiptum þeirra... og fleira í þeim dúr.

Jæja, anyways, þá er ég orðinn drulluþreyttur, nýskriðinn úr ræktinni með Jóa Búddista og snillingi með meiru... þannig að það er best að ég hvíli þetta... just rambling...

p.s. kláraði loksins að vinna í dag... átti að klára í gær, en hr.Lárus þurfti að útrétta... hmmm... ef fólk á frí eitthvað visst lengi, þá á það að taka fríið ef það ætlar að gera það... ekki að vera með vangaveltur um að koma fyrr og skjóta það svo niður á síðustu stundu... grrr...

p.p.s. Reddið ykkur endilega laginu Just a little bit more með Tony C and the Truth... hlustið svo á það og ímyndið ykkur stelpu að strippa við það... ég lofa ykkur að þetta verður mest eggjandi dans sem þið getið ímyndað ykkur...