föstudagur, desember 12, 2003

Zeus and Leoncie "princess of crap"

Zeus

src=http://paleothea.com/Pictures/zeusquiz.jpg>


??Which Greek God are you??(guys only)(I'll Soon Have another quiz like this for girls)NOT FINISHED
brought to you by Quizilla


Jæja, tölvan aftur orðin nettengd eftir smá hazzle við netstjórana, próflestur imminent en gæti gengið betur.

En að öðru. Ég heyrði Leoncie spilaða í útvarpinu um daginn... ok kl var að verða 4a.m. en mér er alveg sama. Með því að halda því til streitu að allir séu að leggja hana í einelti þegar tónlistin hennar er gagnrýnd er hún að verða búin að heilaþvo íslenskt fjölmiðlafólk. Það þorir enginn að gagnrýna hana lengur, og sumir eru meira að segja farnir að hrósa henni fyrir að vera "öðruvísi". Þessi veruleikafirrti, ofsóknaróði mikilmennskubrjálæðingur fer offari í öllu sem hún gerir, þannig að fólk er hrætt við að vera nálægt henni, amk á opinberum vettvangi, því það veit að hún myndi hella sér yfir það við fyrsta gagnrýnispíp, og það er ekki gott fyrir almenningsálitið að einhver helli sér yfir mann í sjónvarpinu. Þess vegna brýtur fólk odd af oflæti sínu og lætur eins og það sé hægt að hlusta á þetta crap. Ég gæti meira að segja trúað fm957 til að taka þetta upp á sína arma því að það væri einhvers konar hnakkafyndni að gera óbeint grín að þessu, en þá myndi ungdómur þessa lands að sjálfsögðu halda að þetta væri gott (því að það ER gott ef FM segir að það sé gott, eða bara ef FM spilar það), og þá yrði Leoncie vinsæl. Sem er ekki gott. Því að tónlistin hennar er crap. Hins vegar væri ég alveg til í að sjá viðtal við þennan Viktor sem er kallinn hennar. Til þess að geta búið með henni svona lengi þarf hann að vera annað tveggja. 10x geðveikari en hún, eða gjörsamlega bældur kjölturakki. Mig langar svolítið að sjá hvort hann er.

mánudagur, desember 01, 2003

1.des

Jæja, flest jólaverkin búin, kominn með aðventuljós og seríu útí glugga og lítið jólatré á stofugólfið. Einhvern veginn hef ég á tilfinningunni að þetta hefði ekki gerst ef ég hefði búið einn hérna. Ég er ekki mesta jólabarnið around. Ég hef ítrekað gleymt að ég ætla að kaupa jólagjafir handa mínu nánustu og ætlað að skrifa nánasta vinahópnum jólakort. Einhvern veginn er ég bara ekki í jólaskapi, þó svo að jólastöðin dúndri yfir mér every waking moment hérna heima. Ég held að það eigi eftir að bjarga mér hvað Tinna er mikið jólabarn í sér. Mér finnst alveg æðislegt að fylgjast með henni hrópa upp yfir sig þegar uppáhaldsjólalagið hennar kemur í útvarpinu (þau eru nokkur) eða bráðna þegar hún sér flotta skreytingu.
En allavega, veit einhver hvenær skólinn byrjar á morgun? Ég hef á tilfinningunni að ég eigi að vera í verklegri efnafræði, en ég er bara ekki alveg viss